Hið breska Flybe var úrskurðað gjaldþrota í lok síðustu viku og náðu stjórnendur þess því aðeins að halda úti áætlunarflugi í tæpa 10 mánuði eftir að hafa verið endurreist félagið í kjölfar gjaldþrots í mars árið 2020. Þá var Covid faraldurinn var ný hafinn.
Flybe sinnti helsta áætlunarflugi á milli breskra borga og bæja og einnig voru í boði ferðir frá Bretlandi til Amsterdam og Genfar. Í flota Flybe voru tíu DHC-8-400 flugvélar sem er sama tegund og Icelandair notar í innanlandsflug og áætlunarferðir til Grænlands.
Þess má geta að árið 2014 spreytti Flybe sig á Íslandsflugi frá ensku borginni Birmingham en sú útgerð lagðist af eftir níu mánuði. Í kjölfarið ákváðu stjórnendur Icelandair að setja stefnuna á Birmingham og þangað flaug félagið reglulega á árunum 2015 til 2018.