Nú í morgunsárið fóru fram í Kauphöllina viðskipti með hlutabréf Icelandair upp á 1,3 milljarð króna. Viðskiptin fóru fram á genginu 1,9 krónur á hlut en við lokun markaða í síðustu viku var gengið 1,85 kr.
Um 700 milljón hlutir í Icelandair tengjast viðskiptum morgunsins en það jafngildir 1,7 prósenti af útgefnum hlutum í flugfélaginu en samkvæmt heimildum Túrista eru fjárfestarnir bandarískir.
Í því samhengi má rifja upp að bandaríska fjárfestingafélagið Miri Capital Management keypti hlutabréf í Icelandair fyrir um einn milljarð króna í nóvember og varð þar með einn af stærstu hluthöfum flugfélagsins. Í nýlegri fjárfestakynningu Miri Capital kemur fram það mat sjóðsins að hlutabréf Icelandair séu undirverðlög.
– Fréttin verður uppfærð þegar nánari upplýsingar liggja fyrir