Stjórn norska flugfélagsins Flyr tilkynnti í morgun að tilraun til að safna nýju hlutafé hefði ekki gengið eftir. Þar með væri staða félagsins í lausu lofti því fyrir liggur að sjóðir félagsins eru senn uppurnir. En taprekstur hefur einkennt starfsemina allt frá því að jómfrúarferðin var farin í lok júní árið 2021.
Í ljósi þessa að hlutafjárútboðið skilaði engu þá féll gengi hlutabréfa í félaginu um leið og kauphöllin í Ósló opnaði. Lækkun dagsins nam í heildina 71 prósenti og markaðsvirði Flyr er því núna rétt um 700 milljónir íslenskra króna.
Til samanburðar er virði hlutafjár Play 11,4 milljarðar kr. en íslenska félagið hóf líka áætlunarflug í júní í hittifyrra.
Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvert framhaldið verður hjá Flyr en flugáætlun félagsins gerir ekki ráð fyrir neinum ferðum á morgun. Í flugflota félagsins eru 6 nýlegar Boeing Max þotur og 6 eldri Boeing 737-NG en félagið hefur leigt hluta flugvélanna í önnur verkefni enda var áætlun vetrarins skorin rækilega niður vegna fjárhagsvandans.