Icelandair fjármagnar kaup á tveimur Max-vélum

Icelandair hefur lokið 67 milljóna dollara fjármögnun á tveimur Boeing 737 MAX 8 flugvélum í samstarfi við Itasca Re og þýska bankann NORD/LB. Félagið keypti vélarnar fyrir handbært fé í haust. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Icelandair er um að ræða tryggingavarða fjármögnun og eru vélarnar sem um ræðir nú að fullu í eigu félagsins.

„Mikil samkeppni var um aðkomu að þessu verkefni. Það skilaði sér í mjög samkeppnishæfum kjörum og staðfestir jafnframt trú fjárfesta á virði og styrkleikum MAX vélanna,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair í fréttatilkynningu.