Hingað til hefur Kaupmannahöfn verið eini áfangastaður Play í Danmörku en næsta sumar verður heldur betur breyting þar á því þá hefst áætlunarflug á vegum félagsins til Billund, Árósa og Álaborgar. Í boði verða tvær ferðir í viku til hvers áfangastaðar.
Þetta kemur fram í frétt danska flugmiðilsins Checkin.
Þar er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, að það séu miklir möguleikar í því fólgnir í flugi til þessara þriggja borga, ekki bara fyrir flug þaðan til Íslands heldur líka til Bandaríkjanna. Birgir bætir því við að framboð á ferðum, fyrir íbúa vesturhluta Danmerkur, sé alltof lítið og þess vegna ánægjulegt að Play gæti bætt úr því með flugi á viðráðanlegu verði.
Billund hefur lengi verið hluti af sumaráætlun Icelandair en félagið hefur hins vegar ekki sinnt hinum nágrannaborgunum Álaborg og Árósum.
Með þessari viðbót þá verða átta skandinavískar flugvellir hluti af leiðakerfi Play á næsta ári eða tvöfalt fleiri en á síðustu sumarvertíð. Fjórða viðbótin er Stokkhólmur en fyrsta ferðin þangað er á dagskrá í mars.