Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur haldið úti daglegu flugi til Keflavíkurflugvallar frá Newark flugvelli við New York síðustu sumur. Félagið hefur vertíðina hér á landi vanalega í maí og heldur ferðunum úti fram í lok október.
Í flugsætum talið nemur framboð United, á þessari flugleið, hátt í 30 þúsund sætum og þar af er fjöldi á fyrsta farrými en eingöngu United og Delta bjóða upp á þess háttar þjónustu í flug til Íslands.
Áætlun United Airlines fyrir komandi sumar gerði ráð fyrir að Íslandsflugið frá New York yrði í föstum skorðum en núna er hins vegar ekki lengur hægt að bóka sæti á þessari flugleið.
Túristi hefur óskað eftir skýringum á þessari breytingu á áætlun United og verður hún birt þegar svar berst en ljóst er að um er að með þessum niðurskurði þá dregst framboð á flugi milli Íslands og New York í sumar um 18 prósent samkvæmt talningu Túrista.
United kveður þó ekki Keflavíkurflugvöll því félagið gerir áfram ráð fyrir að fljúga þotum sínum daglega til Íslands frá Chicago yfir sumarmánuðina þrjá og fram í september.