Samfélagsmiðlar

Telur verðbólgu hafa náð hámarki á heimsvísu

Gita Gopinath, aðalhagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á fundinum í Davos í dag.

Verðlag hér heima og erlendis hefur hækkað hratt síðustu misseri og vextir sömuleiðis. Við þessi skilyrði má gera ráð fyrir að færri hafi ráð á ferðalögum líkt og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, kom inn á í viðtali við Túrista í byrjun nóvember. Þar sagðist Bogi telja skynsamlegt að stíga varlega til jarðar hvað aukningu á framboði varðar enda væri „verðbólga á fleygiferð“ á öllum mörkuðum flugfélagsins.

Skilaboð dagsins frá Gita Gopinath, aðalhagfræðingi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eru hins vegar þau að verðbólga hafi líklega náð hámarki á heimsvísu en árið í ár verði engu að síður erfitt. Gopinath reiknar með að hagvöxtur fari að aukast um mitt þetta ár og sú þróun haldi áfram fram á næsta ár. Þetta kom fram í erindi Gopinath á efnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss í dag og fréttaveita Bloomberg segir frá.

Segja má að þessi spá um bjartari horfur í heimsbúskapnum séu í takt við það sem ráðamenn hinna ýmsu ríkja hafa haldið fram á fundinum í Davos. Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, sagðist til að mynda sannfærður um að þar í landi myndi hagkerfið ekki dragast saman í ár, öfugt við það sem spáð hefur verið.

Og í því samhengi má benda á að Þjóðverjar eru fjölmennir í hópi ferðamanna hér á landi. Í sumar verður til að mynda í fyrsta sinn haldið úti beinu flugi frá Þýskalandi til bæði Akureyrar og Egilsstaða. Hið þýska Condor ætlar að fljúga til beggja þessara bæja frá Frankfurt og Niceair gerir ráð fyrir reglulegum ferðum frá Akureyri til Dusseldorf.

Íslensk ferðaþjónusta á því mikið undir að Þjóðverjar hafi ráð á því að ferðast.

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …