Samfélagsmiðlar

Tvöfalt hærri hagnaður

Farþegarými í Boeing Max þotur Ryanair en stjórnendur félagsins tóku reynar upp á því að kalla þær „Gamechanger" í kjölfar þess flugvélar af þessari tegund hröpuðu í tvígang til jarðar, fyrsta í árslok 2018 og aftur í byrjun 2019.

Rekstur Ryanair, stærsta flugfélags Evrópu í farþegum talið, skilaði hagnaði upp á 211 milljónir evra síðustu þrjá mánuðina í fyrra. Upphæðin jafngildir um 33 milljörðum króna á gengi dagsins.

Hagnaðurinn var rúmlega tvöfalt hærri á sama tímabili árið á undan en hlutfallslega jukust tekjurnar minna eða um 57 prósent.

Í kynningu á uppgjörinu í morgun sagði Michael O´Leary, forstjóri Ryanair, að nýliðin jólavertíðin hefði verið mjög góð og eins væri ferðamannastraumurinn til Evrópu frá bæði Asíu og Bandaríkjunum öflugur. „Eftirspurn eftir flugmiðum um páskana og í sumar er því góð,“ bætti írski forstjórinn við.

Reikningsárið hjá Ryanair nær frá 1. apríl til 31. mars, árið eftir. Það eru því þrír mánuðir eftir af reikningsárinu hjá félaginu en því er hins vegar lokið hjá Icelandair en í þessarar viku birta stjórnendur íslenska félagsins uppgjör sitt fyrir 2022.

Nokkur þrýstingur er á stjórnendur félagsins að veita ítarlegri upplýsingar um horfurnar í rekstrinum en tíðkast hefur því líkt og Túristi greindi þá hefur einn stærsti hluthafi Icelandair látið í ljós óánægju sína með upplýsingagjöfina til fjárfesta.

Þess má geta að Íslands er eitt fárra ríkja Evrópu sem Ryanair flýgur ekki til. Leiðakerfi félagsins nær nefnilega til allra landa álfunnar nema Íslands, Færeyja, Moldovu og Hvíta-Rússlands. Áætlunarferðir Ryanair til Rússlands og Úkraínu liggja auk þess niðri vegna innrásarstríðs Rússa.

Nýtt efni

Play gaf það út í síðasta mánuði að ónefndur hópur meðal stærstu hluthafa flugfélagsins auk annarra fjárfesta hefði skuldbundið sig til að leggja félaginu til 4,5 milljarða króna. Tveir af þeim fjórum lífeyrissjóðum sem eru á lista yfir stærstu hluthafanna sögðust ætla að taka þátt. Rökin fyrir forstjóraskiptunum um síðustu mánaðamót svo þau að Einar …

Lofthelgin yfir Ísrael, Líbanon, Jórdaníu og Írak var lokað á laugardagskvöld eða flug þar um háð miklum takmörkunum. Þetta hafði auðvitað mest áhrif á flug innan svæðisins en líka á yfirflug véla á milli heimsálfa. Í gær var tímabundnum takmörkunum aflétt þegar árásum Írana á skotmörk í Ísrael linnti.  Flugöryggisstofnun Evrópu (The European Union Aviation …

Stjórnendur flugfélagsins Westjet sóttu um lendingartíma á Keflavíkurflugvelli fyrir sumarvertíðina 2020 og þá var ætlunin að fljúga hingað fjórum sinnum í viku frá Toronto, fjölmennustu borg Kanada. Sala á flugmiðum fór þó aldrei í loftið og áður Covid-faraldurinn hófst í ársbyrjun 2020 hafði Westjet gefið út að ekkert yrði að Íslandsfluginu. Stuttu síðar lokuðust landamæri …

Umhverfisstofnun er farin að fikra sig áfram með álagsstýringu á ferðamannastöðum. „Við erum að setja af stað pöntunarkerfi í Landmannalaugum i sumar,“ sagði Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri sviðs náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun, á ársfundi náttúruverndarnefnda nýverið. „Þetta er mjög einföld aðferð,“ sagði Inga Dóra: Ef þú kemur akandi þarftu að bóka stæði og borga fyrir það. …

Stjórnendur rafbílaframleiðandans Tesla leita nú leiða til að draga úr kostnaði og horfa þeir til þess að segja upp 14 þúsund starfsmönnum eða um 10 prósent af vinnuaflinu. Þetta kemur fram í tölvupósti sem forstjóri félagsins, Elon Musk, sendi til starfsfólks samkvæmt frétt sem fagritið Electrek birti í morgun. „Ég hata ekkert meira en þetta …

Stefnt er að því að á hótelinu verði veitingastaður, ráðstefnu- og veislusalur ásamt heilsulind. Síðan er ætlunin að stækka Skógarböðin og tengja þau hótelinu.  Samkvæmt fréttatilkynningu er um að ræða fimm milljarða króna fjárfestingu. Áætlað er að hótelið verði opnað eftir tvö ár, vorið 2026.  „Þetta er virkilega spennandi verkefni sem við hjá Íslandshótelum hlökkum …

Hver hlutur í Icelandair kostaði fyrir opnun Kauphallarinnar í morgun 1 krónu og fjóra aura. Verðið hefur ekki verið svona lágt síðan í nóvember árið 2020 en þá hafði félagið nýverið efnt til hlutafjárútboðs þar sem sölugengið var 1 króna á hlut. Í dag er markaðsvirði Icelandair 43 milljarðar króna og hefur það lækkað um …

Stafræna byltingin gerði fjarvinnu auðveldari og heimsfaraldurinn festi það vinnufyrirkomulag í sessi. Stór og vaxandi hópur fólks nýtir sér þá möguleika sem felast í þessu frelsi - að geta unnið verk sín eiginlega hvar sem er í heiminum, skila unnum verkum af sér án þess að mæta á tiltekinn stað á tilgreindum tíma. Áætlað er …