Arnar Bentsson hefur verið ráðinn forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Isavia. Hann tekur við starfinu af Raquelitu Aguilar sem hvarf nýverið til annarra starfa. Í tilkynningu frá Isavia segir að Arnar hafi verið valinn úr hópi tæplega fimmtíu umsækjenda en hann hefur síðustu mánuði starfað sem stafrænn ráðgjafi hjá Isavia.
„Reynsla Arnars og þekking mun nýtast vel í áframhaldandi þróun á málaflokki stafrænnar þróunar hjá Isavia,“ segir Bjarni Örn Kærnested, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Isavia.
Arnar er með M.Sc. gráðu í Management of Innovation and Business Development (stjórn nýsköpunar og viðskiptaþróunar) frá Copenhagen Business School (CBS) og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur víðtæka reynslu af stafrænum umbreytingaverkefnum og hefur m.a. starfað við slík verkefni hjá Storytel, Vodafone og Telenor í Danmörku.