Áætlunarferðir Wizz Air til Íslands frá Napólí og Feneyjum heyra sögunni til líkt og Túristi greindi frá nýverið. Þetta er þó ekki eini niðurskurðurinn í Íslandsflugi ungverska flugfélagsins á komandi sumarvertíð.
Frá og með lokum marsmánaðar er nefnilega ekki reiknað með neinum ferðum til Keflavíkurflugvallar frá Luton flugvelli við London. Þetta sést í bókunarvél félagsins en ekki hafa fengist skýringar á breytingunni hjá flugfélaginu sjálfu.
Wizz Air hóf að fljúga til Íslands frá Bretlandi í apríl 2018 og þá voru á boðstólum fjórar ferðir í viku. Nokkrum dögum eftir gjaldþrot Wow air í mars 2019 boðuðu stjórnendur Wizz Air daglegt flug hingað frá bresku höfuðborginni. Veturinn fyrir heimsfaraldur var ferðunum fækkað í fimm í viku.
Samkeppni í Íslandsflugi frá London hefur lengi verið hörð enda hafa fimm flugfélög haldið úti reglulegum ferðum hingað frá fjórum flugvöllum á Lundúnarsvæðinu. Til viðbótar hefur breska ferðaskrifstofan Tui verið með eigin ferðir hingað frá London yfir vetrarmánuðina.
Umferðin hefur því verið stíf og til marks um það var flogið um 240 sinnum héðan til London í janúar eða að jafnaði 8 brottfarir á dag. Hlutdeild Wizz Air var rétt rúmlega 6 prósent í ferðum talið samkvæmt ferðagögnum Túrista.
Þrátt fyrir að Wizz Air hafi nú tekið úr sölu Íslandsflug frá þremur borgum þá eru umsvifin áfram töluverð á Keflavíkurflugvelli. Sumaráætlun félagsins gerir nefnilega ráð fyrir ferðum frá tíu borgum og þar af fimm í Póllandi.