Samfélagsmiðlar

Færri valkostir fyrir Frakka á leið til Íslands

Nú hafa þrjú erlend flugfélög skorið niður flug til Keflavíkurflugvallar í sumar. Vægi íslensku flugfélaganna eykst því enn frekar enda eru þau bæði að auka umsvif sín töluvert.

Þotur Transavia munu fljúga hingað frá tveimur borgum í sumar en ekki þremur eins og áður var.

Yfir sumarmánuðina eru Bandaríkjamenn fjölmennastir í hópi ferðamanna hér á landi en þar á eftir koma Þjóðverjar og svo Frakkar. Framboð á Íslandsflugi frá þessum tveimur Evrópuríkjum er þó mjög ólíkt. Frá Þýskalandi er nefnilega flogið hingað reglulegu frá fimm borgum á meðan flugið til Keflavíkurflugvallar frá Frakklandi takmarkast að langmestu leyti við París.

Síðastliðið sumar bætti Icelandair þó við flugi til Nice yfir hásumarið og Transavia hélt uppteknum hætti og bauð upp á áætlunarflug hingað frá Nantes frá vori og fram á haust.

Nú ætlar þetta dótturfélag Air France og KLM hins vegar að leggja niður Íslandsflugið frá Nantes. Þetta staðfestir talsmaður flugfélagsins í svari til Túrista en fer þó ekki nánar út í ástæður þessarar ákvörðunar.

Með þessari breytingu fækkar flugsætunum frá Frakklandi til Íslands næsta sumar um alla vega 4000 sæti. Gera má ráð fyrir að það hafi helst verið franskir ferðamenn sem nýttu sér ferðir Transavia í fyrra en héðan flugu nærri 50 þúsund franskir ferðamenn frá byrjun júní og fram í lok september.

Þrátt fyrir að flug milli Nantes og Keflavíkurflugvallar sé dottið út af sumaráætlun Transavia þá munu þotur félagsins halda áfram að fljúga hingað frá bæði Amsterdam og París. En sem fyrr segir er Transavia hluti af Air France-KLM Group en þessi tvö stóru flugfélög hafa látið lágfargjaldaflugfélagi samsteypunnar Íslandsflugið eftir.

Þessi niðurskurður hjá Transavia er sá þriðji sem komið hefur til nú í ársbyrjun því líkt og Túristi hefur áður greint frá þá hætti bandaríska flugfélagið United við að halda úti daglegu flugi hingað frá New York og Wizz Air leggur niður ferðirnar frá London í lok vetrar.

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …