Þegar Rússar réðust á Úkraínu aðfararnótt 24. febrúar í fyrra bönnuðu úkraínsk flugmálayfirvöld allt flug um lofthelgina. Nokkrum flugvélum á leið þangað var snúið við en aðrar fimm sátu fastar. Ungverska Wizz-flugfélaginu tókst að koma einni vélanna úr landi í september yfir til Katowice í Póllandi en eftir sitja í Úkraínu þrjár aðrar vélar félagsins. Engar horfur eru á því nú að þeim verði flogið á næstunni.
Vélarnar þrjár í eigu Wizz eru af gerðinni Airbus A320-200 og var flogið frá Hamborg, Brussel og Mílanó rétt áður en innrásin hófst og flugbann tók gildi.
Fjórða flugvélin sem situr föst vegna stríðsins er fragtvél af gerðinni Airbus A330-300 í eigu SmartLynx Malta, dótturfélags SmartLynx í Lettlandi.