Lengi vel bauð hið svissneska Edelweiss aðeins upp á flug til Keflavíkurflugvallar yfir sumarmánuðina en nú fljúga þotur félagsins þangað líka yfir veturinn. Í sumar ætla Svisslendingarnir svo að spreyta sig á ferðum frá Zurich til Akureyrar og af svörum stjórnenda félagsins að dæma þá gengur sala á öllum þessum ferðum til Íslands vel.
„Eftirspurnin hér í Sviss eftir ferðum til Íslands í sumar er gríðarleg. Ísland er orðinn vinsæll áfangastaður meðal Svisslendinga og annarra Evrópubúa bæði á sumrin og veturna. Og með nýja fluginu okkar til Akureyrar þá geta farþegar sneitt hjá þéttsetnum ferðamannastöðum á suðvesturhorninu og flogið beint til norðurhluta eyjunnar. Fólki býðst líka að fljúga til Akureyrar og heim frá Keflavík eða öfugt og þannig gert ferðalagið um Ísland einfaldara með því að draga úr akstrinum. Við höfum nú þegar fengið fjölda bókanna á þess háttar ferðum,“ segir Andreas Marti, talsmaður Edelweiss, í svari við fyrirspurn Túrista.
Zurich heppilegur tengivöllur fyrir Íslendinga
Edelweiss er ekki hefðbundið áætlunarflugfélag og því er ekki hægt að bóka á heimasíðu félagsins ferðalag sem hefst á Íslandi, bara frá Sviss. Íslendingar eru þó velkomnir um borð en verða þá að bóka ferðina hjá Swiss eða Lufthansa, systurfélögum Edelweiss.
„Ferðir okkar frá Keflavík og Akureyri bjóða upp á góðar tengingar frá Zurich til fjölda áfangastaða um allan heim. Þannig getur fólk sem býr fyrir norðan flugið með okkur til Zurich og þaðan til Grikklands, Ítalíu, Egyptalands og Spánar án þess að þurfa að hefja ferðalagið í Keflavík. Ferðalagið að Miðjarðarhafinu verður því einfaldara fyrir Akureyringa.“