Samið um verkfallsvörslu

Mynd: Efling
Verkfallsverðir Eflingar á Fosshóteli Reykjavík MYND: Facebook-síða Eflingar

Samkomulag hefur náðst milli Eflingar og Íslandshótela um hvernig standa eigi að verkfallsvörslu, samkvæmt fréttatilkynningu frá verkalýðsfélaginu. Samkomulagið felur í sér eftirfarandi:

  • Tveir tveggja manna hópar verkfallsvarða heimsækja stærri hótel Íslandshótela í hverri heimsókn (Grand Hótel og Fosshótel Reykjavík). Hóparnir fara hvor í sínu lagi um húsnæði viðkomandi hótels.
  • Einn tveggja manna hópur heimsækir smærri hótelin í hverri heimsókn (Centrum, Saga, Barón, Lind, Rauðará).
  • Hóparnir eru ekki með gjallarhorn eða dreifimiða og ónáða ekki gesti.
  • Aðengi hópa að vinnurýmum hótelsins, þ.m.t. þvottahúsum, verður ekki hamlað. Ekki verður farið inn í eldhús (vegna heilbrigðisreglna) en dyr inn í eldhús verða opnaðar til að hægt sé að sjá inn.
  • Hópar gefa sig fram í móttöku hótels þegar þeir koma á vettvang en það á ekki að tefja upphaf verkfallsvörslu eftir að þeir koma á vettvang.
  • Ekki er gerð athugasemd við að einn starfsmaður hótelsins fylgi hópnum en öryggisverðir fylgja ekki hópunum.