Ráðherra fundaði með fulltrúum OECD á sviði nýsköpunar, lítilla og meðalstórra fyrirtækja, landsvæða og borga, en sviðið fer með málefni ferðaþjónustu og menningargeirans. Kynnti ráðherra meðal annars vinnu við aðgerðaáætlun í ferðaþjónustu á Íslandi sem unnið er að á vettvangi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Sérstaklega var rætt um stöðu og horfur í alþjóðlegri ferðaþjónustu og samkeppnishæfni ferðaþjónustu með tilliti til gjaldtöku í greininni og sjálfbærni.
„Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem skilar mestum gjaldeyristekjum fyrir þjóðarbúið. Í yfirstandandi vinnu við aðgerðaáætlun í greininni er mikilvægt að huga í hvívetna að samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu og tryggja að Ísland verði áfram eftirsóknarverður áfangastaður fyrir ferðamenn. Í því ljósi höfum við meðal annars verið að hrinda í framkvæmd tillögum úr samkeppnismati OECD á íslenskri ferðaþjónustu og ryðja þannig úr vegi samkeppnishindrunum í greininni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, í tilkynningu ráðuneytisins að loknum fundinum í París.