Samfélagsmiðlar

Tapið ekki minna í 5 ár

Afkoma Icelandair var miklu betri í fyrra en árin á undan. Stjórnendur félagsins met tapið, vegna ófærðar á Reykjanesbrautinni fyrir jól, á einn milljarð króna.

Allt frá árinu 2018 hefur Icelandair Group verið rekið með tapi en Covid-19 faraldurinn lamaði reksturinn í ársbyrjun 2020 og hafði einnig veruleg áhrif árið eftir. Og neikvæðra áhrifa gætti líka í byrjun síðasta árs. Hins vegar var eftirspurn eftir ferðalögum mikil þegar leið á sumarið og fargjöld almennt hærri en dæmi eru um. Tekjur Icelandair á hvern farþega voru þá hærri en áður.

Það dugði þó ekki til að reksturinn væri réttum megin við núllið í fyrra en litlu munaði því tapið nam 5,8 milljónum bandaríkjadollara eða 786 milljónum króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 2,6 milljörðum króna.

Afkoman á síðasta fjórðungi ársins hefur ekki verið hærri síðan árið 2015, þrátt fyrir stjórnendur Icelandair meti tjónið sem varð vegna ófærðar, dagana fyrir jól, á einn milljarð króna.

„Árið 2022 markar mikinn viðsnúning í rekstri Icelandair. Sterk tekjumyndum með met farþegatekjum á seinni hluta ársins og stórbætt EBIT hlutfall sýnir að viðskiptalíkan félagsins hefur enn og aftur sannað gildi sitt. Við höfum náð vopnum okkar og höldum ótrauð áfram, sterkari en nokkru sinni fyrr, með stærstu flugáætlun í sögu félagsins á þessu ári þegar kemur að tíðni og fjölda áfangastaða.

Stefna okkar og aðgerðir á meðan á faraldrinum stóð gerðu það að verkum að við vorum tilbúin að bregðast við og auka flugframboð hratt til að mæta mikilli eftirspurn. Við tvöfölduðum flugáætlun félagsins á milli ára, fjölguðum áfangastöðum í 51 og fluttum 3,7 milljónir farþega á árinu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.

Nýtt efni

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …

Í marsmánuði fór fjöldi erlendra ferðamanna í Japan í fyrsta skipti yfir 3 milljónir, samkvæmt tölum sem birtar voru í síðustu viku. Um 2,7 milljónir komu í febrúar. Auðvitað nýtur japönsk ferðaþjónusta nú uppsafnaðrar löngunar erlendra ferðamanna á að heimsækja loks Japan eftir langvarandi lokun og ferðahindranir í tengslum við Covid-19 en það er ekki …

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands var heiðraður á ársfundi Meet in Reykjavik í gær. Hann leiddi til sigurs umsókn Íslands um að fá ráðstefnuna „International Geoscience and Remote Sensing Symposium (IGARSS)“ til Reykjavíkur í júlí 2027. Gert er ráð fyrir að 2.500 erlendir vísindamenn og fagfólk á sviði fjarkönnunar frá öllum heimshornum sæki ráðstefnuna …

United Airlines tilkynntu í gær um betri afkomu en vænst var á öðrum ársfjórðungi. Þetta kemur í framhaldi af því að tapið á fyrsta fjórðungi var minna en óttast hafði verið. Megin ástæða þess að vel gengur er einfaldlega mikill áhugi á ferðalögum. Hlutabréf í United hækkuðu strax í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var …

Japanskir bílaframleiðandur hafa dregist aftur úr nýrri fyrirtækjum á borð við bandaríska Tesla og kínverska BYD í þróun rafbílasmíði. En menn velta því fyrir sér hvort japanskir framleiðendur á borð við Toyota og Nissan verði ekki fljótir að vinna upp það forskot - og jafnvel ná forystu - með þróun nýrrar gerðar rafhlaðna, sem vonir …