Í byrjun síðasta áratugar var árstíðarsveiflan í ferðaþjónustunni miklu meiri en í dag. Árið 2012 voru erlendir gestir á reykvískum hótelum fimmfalt fleiri í júlí en í febrúar. Allt fram að heimsfaraldri jókst ásókn í vetrarferðir hingað til lands og bilið milli vetrar- og sumarmánaða minnkaði hratt.
Í febrúar árið 2019 gistu 171 þúsund útlendingar á hótelum höfuðborgarinnar en þeir voru 319 þúsund í júlí samkvæmt tölum Hagstofunnar. Munurinn milli þessa tveggja mánaða var því ekki lengur fimmfaldur heldur tæplega tvöfaldur, samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Hátt í 1.400 flugferðir til Keflavíkur
Samanburður við árið 2022 gefur ekki skýra mynd af stöðunni vegna útbreiðslu Covid-19 í ársbyrjun, sem takmarkaði ferðalög milli landa. Til marks um það þá verður umferðin um Keflavíkurflugvöll tvöfalt meiri í dag en hún var 1. febrúar í fyrra.
Næstu fjórar vikur verða í sölu hátt í 1.400 flugferðir til landsins, sem jafngildir um 90 prósent af framboðinu í febrúar 2019, samkvæmt ferðagögnum Túrista. Ef fjöldi erlendra ferðamanna í hverri þotu verður álíka að þessu sinni og dreifingin um landið sambærileg þá má gera ráð fyrir að um 150 þúsund útlendingar muni tékka sig inn á hótel í Reykjavík nú í febrúar.
Boðuð verkföll félagsmanna Eflingar á fimmtán reykvískum hótelum gætu því haft áhrif á þessi áform og þá þjónustu sem hægt er að veita. Þrjú af hótelunum fimmtán, sem verkfall hefur áhrif á, eru meðal þeirra allra fínustu í miðborginni.
Há herbergjanýting
Sem fyrr segir er hótelmarkaðurinn í Reykjavík miklu blómlegri nú í febrúar en hann var fyrir áratug. Þá eru ekki aðeins taldir gestir heldur líka horft til nýtingar. Í febrúar 2017 voru 96 prósent herbergja bókuð samkvæmt tölum Hagstofunnar. Árin á eftir fór hlutfallið niður á við en var engu að síður hærra en aðra mánuði ársins, að frátöldum júlí og ágúst, eins og sjá má hér fyrir neðan.