Samfélagsmiðlar

Endurgreiða þeim sem áttu bókað

Þotur Condor hefðu sett sterkan svip á flugvallarsvæðin fyrir norðan og austan í sumar enda óvenjulegar í útliti.

Nú liggur ljóst fyrir að ekkert millilandaflug verður í boði frá Egilsstöðum í sumar því hið þýska Condor hefur hætt við ferðir sínar þangað frá Frankfurt en fyrsta brottför var á dagskrá í maí. Það sama gildir um áform félagsins um að halda úti vikulegu flugi til Akureyrar. Frá þessu var greint í gær og ferðafrömuðir fyrir norðan og austan lýstu vonbrigðum sínum hér á síðum Túrista í framhaldinu.

„Þetta eru náttúrulega vondar fréttir, það hefur gríðarleg vinna farið í að vinna að því að af þessu flugi yrði og að undirbúa móttöku farþega Condor hér. Hér höfum við öll lagt mikið á okkur undanfarna mánuði í undirbúningi fyrir flugið,” sagði Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar og fleiri tóku undir með henni.

Hjá Condor fást ekki upplýsingar um hversu margir Íslendingar áttu bókað far til Þýskalands í sumar en talskona flugfélagsins segir að allir miðar verði endurgreiddir í samræmi við reglur um réttindi farþega. Auk þess geti fólk fengið svör í þjónustuveri félagsins varðandi endurbókanir.

Stutt í þarnæsta sumar

Í tilkynningu sem send var út í gærkvöld, um ákvörðun stjórnenda Condor, segir að megin skýringin á niðurfellingu ferðanna sé sú að salan hafi farið of seint af stað. En það var í júlí í fyrra sem tilkynnt var um þessi áform en þá voru 10 mánuðir í fyrstu ferð.

Í dag eru 14 mánuðir í að sumarvertíðin 2024 hefjist en talskona Condor vill ekkert segja um hvort Akureyri og Egilsstaðir rati inn á áætlun næsta árs og þá hvenær miðasala hefjist.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …