Samfélagsmiðlar

Farþegahópurinn ennþá mun fámennari en á metárunum

Það voru um 812 þúsund farþegar sem lögðu leið sína um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrstu tvo mánuði ársins. Þetta er skiljanlega miklu fleiri en á sama tíma í fyrra og hittifyrra þegar heimsfaraldurinn setti allar samgöngur milli landa úr skorðum.

Í samanburði við janúar og febrúar árið 2020 hefur farþegaum fjölgað en ennþá er töluvert í að farþegarnir verði álíka margir og á árunum 2017 til 2019 þegar umferðin náði hámarki. Þessi ár jukust umsvif Icelandair umtalsvert en samt náði Wow Air að verða stærra en keppinauturinn, í farþegum talið, í febrúar árið 2018.

Þessi hraði vöxtur félaganna tveggja reyndist hins vegar ekki arðbær því bæði skiluðu miklu tapi árið 2018 og Wow Air varð gjaldþrota í mars 2019. Það ár var Icelandair einnig í mínus sem skrifaðist helst á kyrrsetningu Boeing Max þotanna.

Nú er Play komið til sögunnar og á næstu mánuðum stækkar flugfloti þess félags úr sex þotum í tíu. Þar með ætti farþegunum á Keflavíkurflugvelli að fjölga umtalsvert en farþegaspá Isavia gerir ráð fyrir að 7,8 milljónir farþega fari um flugstöðina í ár.

Spáin fyrir fyrstu tvo mánuði ársins hljóðaði upp á 864 þúsund farþega en sem fyrr segir voru þeir 812 þúsund. Mismunurinn jafngildir sex prósentum.

Nýtt efni

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …