Samfélagsmiðlar

Flugstjórar Play fá boð um að færa sig yfir til Icelandair

Það bárust ríflega eitt hundrað umsóknir þegar Icelandair auglýsti í síðasta mánuði eftir flugmönnum með reynslu fyrir sumarvertíðina. Um er að ræða tímabundnar stöður en þrátt fyrir það sendi á fjórða tug flugmanna og flugstjóra Play inn umsókn líkt og Túristi greindi frá eða nærri helmingur þeirra sem unnið hafa hjá félaginu í vetur.

Það lá fyrir að Icelandair myndi ekki ráða marga og samkvæmt heimildum Túrista hafa nú tíu umsækjendur fengið tilboð um störf á komandi sumarvertíð, þar af sjö flugstjórar hjá Play.

Sá fjöldi samsvarar um það bil þeim fjölda flugstjóra sem þarf til manna eina þotu og gott betur en flugfloti Play stækkar úr sex þotum í tíu nú í vor.

Til að fljúga öllum þessum flugvélum þarf um sextíu flugstjóra og jafnmarga flugmenn en líkt og fram kemur hér að ofan eru það sjö flugstjórar sem hafa fengið tilboð um að færa sig frá Play til Icelandair og vinna þar sem flugmenn.

Við þessa breytingu lækka grunnlaun viðkomandi um fimmtung því flugmaður hjá Icelandair fær 860 þúsund kr. á mánuði í grunnlaun á meðan flugstjóri hjá Play er með 1,1 milljón kr. Til samanburðar eru flugmannalaunin hjá Play mun lægri eða eða 470 til 590 þúsund krónur.

Akstursstyrkir, dagpeningar og fleira bætast við þessar upphæðir hjá flugfélögunum báðum en vinnuálagið hjá áhöfnum Icelandair mun almennt vera minna en hjá keppinautnum. Icelandair býður jafnframt upp á sætaferðir til og frá Keflavíkurflugvelli á meðan áhafnir Play þurfa sjálfar að koma sér út á flugvöll.

Kjör flugverja Play eru lakari og skýrir það að hluta til þá staðreynd að einingakostnaður flugfélagins er lægri hjá Icelandair. Stjórnendur Play hafa einmitt lagt mikla áherslu á hinn lága einingakostnað í fjárfestakynningum og sagt hann gefa félaginu forskot í samkeppninni líkt og forstjóri Play fór yfir hér á síðum Túrista nýverið.

Sú staðreynd að hluti flugstjóra Play virðist reiðubúinn til að ráða sig tímabundið til Icelandair á lægri launum kann þó að kalla á endurskoðun á kjörunum. ASÍ gagnrýndi það á sínum tíma að kjarasamningar flugfreyja og -þjóna hjá Play voru gerðir, áður en nokkur var ráðinn til að sinna þessum störfum, af stéttarfélagi sem samdi fyrir hönd flugmanna Wow Air en hafði legið í dvala frá gjaldþroti þess félags í mars 2019.

Nýtt efni

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …