Þrjú flugfélög halda úti daglegum ferðum til Kaupmannahafnar og Óslóar frá Keflavíkurflugvelli en Icelandair hefur hins vegar setið eitt að Stokkhólmi í langan tíma. Á því verður nú breyting því frá og með deginum í dag munu þotur Play taka stefnuna á Arlanda flugvöll, við höfuðborg Svíþjóðar, fjórum sinnum í viku. Icelandair flýgur alla daga til Stokkhólms og stundum þrisvar sinnum á dag.
Þeir farþegar sem ætla að fljúga með Play frá Svíþjóð til Íslands fara í terminal 2 á Arlanda á meðan þotur Icelandair fara sem fyrr frá terminal 5.