Samfélagsmiðlar

Miklu færri koma frá Kína en vænst var

Kínverskar ferðabókanir til Evrópulanda í mars og apríl eru aðeins um þriðjungur af því sem var í sömu mánuðum fyrir heimsfaraldur. Enn bíða margir ferðafúsir Kínverjar eftir vegabréfsáritun, flugsæti eru fá og mjög dýr og dýrtíð í Evrópu hjálpar ekki til.

Við Rialto-brúna í Feneyjum

Mun færri Kínverjar hafa bókað ferð til Evrópu en vænst var eftir að ferðatakmörkunum var aflétt. Stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja í álfunni hafa margir orðið fyrir vonbrigðum með hæga endurheimt túrista úr austri sem þekktir eru fyrir að eyða töluverðu fé á ferðum sínum.

Biðröð fyrir utan Chanel-búð í Feneyjum – MYND: ÓJ

Fyrir heimsfaraldurinn var áætlað að hver kínverskur túristi eyddi á bilinu 1.500 til 3.000 evrum í Evrópuferð sinni. Þeir kaupa gjarnan mikið af dýrum varningi og gera vel við sig í mat og drykk. Kínverjar voru 10 prósent þeirra túrista sem komu frá löndum utan Evrópu og hafði þeim fjölgað um 350 prósent áratuginn fram að faraldri. 

Gondólar með túrista frá Asíu – MYND: ÓJ

Bókanir Kínverja í Evrópuferðir í mars og apríl eru tæpur þriðjungur af því sem var í sömu mánuðum fyrir faraldur. Fyrir almenna túrista hófst útgáfa vegabréfsáritana 15. mars og gengur hægar en margir óska. Svo er takmarkað framboð af flugsætum til Evrópu og þau eru allt að 80 prósentum dýrari en fyrir faraldur. Almennar verðhækkanir í Evrópu hljóta líka að fæla marga í burtu. Það er því líklegt að fleiri Kínverjar en ella kjósi við þessar aðstæður að fara í skemmri utanlandsferðir – til Hong Kong, Macau og Tælands. Tölur frá þessum stöðum sýna mikla fjölgun túrista frá alþýðulýðveldinu. 

Florian við Markúsartorg bíður fleiri gesta – MYND: ÓJ

Nú bindur evrópskt ferðaþjónustufólk mestar vonir við að Bandaríkjamenn með sterkan dollarann í vasanum bæti upp tekjumissinn sem felst í því að endurheimta ekki kínversku túristana á vormánuðunum – og það hversu aðhaldssamir evrópskir túristar eru vegna dýrtíðarinnar. Sérfræðingar í ferðamálum gera jafnvel ráð fyrir að bandarískir túristar í Evrópu verði fleiri í ár en 2019. Þegar eru merki um að Bandaríkjamenn sem heimsótt hafa París, London og fleiri vinsæla áfangastaði túrista í álfunni kunni vel að meta hversu mikið þeir geta fengið af lífsins gæðum fyrir sterkan dollarinn. 

En svo eiga kínversku túristarnir auðvitað eftir að skila sér betur til Evrópulanda þegar greiðar gengur að afgreiða ferðaheimildir og meira framboð verður á flugferðum – og verðið á þeim lækkar.

Á aðalbrautarstöðinni í Mílanó – MYND: ÓJ
Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …