Samfélagsmiðlar

Mótmælin draga úr bókunum en þó ekki hjá Icelandair

Horft yfir strandlengjuna í Tel Aviv en þangað fer Icelandair sína fyrstu áætlunarferð í sumarbyrjun.

Tugþúsundir Ísraela hafa mótmælt á götum úti síðustu vikur vegna áforma ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahús um breytingar á dómskerfi landsins. Þar er meðal annars lagt til að ísraelska þingið fái heimild til að snúa dómum hæstaréttar með einföldum þingmeirihluta. Forseti hæstaréttar Ísrael segir áformin árás á lýðræði í landinu.

Þessi mikla spenna sem ríkir í Ísrael er farin að hafa veruleg áhrif á áhuga útlendinga á ferðalögum til Ísrael. Sérstaklega á það við bókanir frá Evrópu því nú hafa verið gefnir út þriðjungi færri flugmiðar til Ísrael en á sama tíma fyrir heimsfaraldur. Undir lok síðasta árs voru pantanir hins vegar á pari við það sem var fyrir Covid-19.

Bókanir á flugi frá Bandaríkjunum til Ísrael eru í dag fjórum prósentum fleiri en þær voru á sama tíma á árunum fyrir heimsfaraldur. Batinn var þó miklu meiri í ársbyrjun því þá nam aukningin um 40 prósentum eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

Heimild: ForwardKeys

Icelandair ætlar að spreyta sig á áætlunarflugi til Ísrael í fyrsta sinn nú í sumar og verður fyrsta ferðin til Tel Aviv, næstfjölmennustu borgar landsins, farin þann 10. maí. Aðpurður segir Guðni Sigurðsson, talsmaður Icelandair, að þar á bæ hafi ekki dregið úr bókunum í flugið til og frá Tel Aviv að undanförnu.

Guðni bendir á að áætlanir Icelandair hafi gert ráð fyrir að fjölmennasti farþegahópurinn yrðu ísraelskir ferðamenn á leið til Íslands og þar á eftir kæmu svo Ísraelar á leið til Bandaríkjanna. Aftur á móti sé reiknað með að hlutfall Íslendinga verði lágt.

„Sá markaður hefur hins vegar farið ágætlega af stað í sölu og ljóst að Íslendingar eru spenntir fyrir að kynna sér framandi slóðir,“ bætir Guðni við.

Nýtt efni

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …