Ferðaþjónustan komst á gott á skrið síðastliðið vor þegar sóttvarnaraðgerðir vegna Covid-19 heyrðu að mestu sögunni til í okkar heimshluta.
Þessi breytta staða endurspeglast í uppgjöri Bláa lónsins sem skilaði 1,9 milljarða króna hagnaði í fyrra eftir að hafa tapað samanlagt um 4 milljörðum króna árin tvö þar á undan.
Veltan í fyrra nam 15,9 milljörðum króna en hún var 17,1 milljarður árið 2019 en það ár hagnaðist Bláa lónið um þrjá milljarða kr.
Eins og áður hefur komið fram hóf Bláa lónið í fyrra undirbúning að skráningu á aðalmarkað Kauphallarinnar og í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag er haft eftir Grími Sæmundsen, stofnanda og forstjóra Bláa lónsins, að horft sé til skráningar í haust en tímasetningin sé háð framvindu undirbúningsvinnu og markaðsaðstæðum.
Sjö í stjórn í stað fimm
Haustið 2021 seldu þeir Sigurður Arngrímsson og Helgi Magnússon, hvor fyrir sig, 6,2 prósent hlut í Bláa lóninu. Blávarmi, félag í eigu fjórtán lífeyrissjóða, keypti af Sigurði en Helgi seldi til fjárfestingafélagsins Stoða. Samhliða sölunni lét Helgi af störfum sem stjórnarformaður Bláa lónsins og Úlfar Steindórsson tók við.
Júlíus Þorfinnsson, rekstrarstjóri Stoða, tók svo sæti í varastjórn Bláa lónsins en nú hefur samþykktum fyrirtækisins verið breytt á þann veg að nú verða engir varamenn og þess í stað sitja sjö en ekki fimm í stjórn félagsins.
Fulltrúi Stoða í stjórninni verður Jón Sigurðsson, forstjóri fjárfestingafélagsins. Hann er einnig stjórnarformaður Símans en fjárfestingafélagið er einnig stór hluthafi í Arion banka, Kviku og flugfélaginu Play.