Þegar íslenska krónan féll í kjölfar efnahagshrunsins var komið fyrir auglýsingaborðum í Leifsstöð þar sem á stóð „Welcome to HalfprIceland“ og var þá vísað til þess að nú fengju ferðamenn hér landi miklu meira fyrir peninginn en áður.
Staðan breyttist svo og í dag er Ísland meðal dýrustu áfangastaða í heimi og á þeim lista er Noregur einnig.
Þar í landi gleðst ferðaþjónustan því yfir lækkun norsku krónunnar því dollarinn, evran og danska krónan hafa styrkst um meira en 20 prósent gagnvart þeirri norsku síðastliðið ár. „Þetta er draumastaða fyrir norska ferðaþjónustu,“ segir Per-Arne Tuftin, hjá samtökum norskra ferðaþjónustufyrirtækja í viðtali við Dagens Næringsliv.
„Við finnum fyrir mjög jákvæðum gengisáhrifum. Vöxturinn í bókunum er óvenju mikill og ekkert annað sem útskýrir þessa þróun,“ segir Kristian Jørgensen, framkvæmdastjóri ferðaskipuleggjandans Fjord Tours Group, aðspurður um hina veiku norsku krónu.
„Samanborið við síðasta hefðbundna ár, árið 2019, þá er hefur bókunum frá Bandaríkjunum fjölgað um 31 prósent, 40 prósent vöxtur frá Bretlandi og milli 50 og 80 prósent viðbót í pöntunum frá Þýskalandi, Spáni og Frakklandi. Það er óvenjulegt. Við sjáum líka að fólk sem bókar ferðir hjá okkur kaupir meira, bæði af gistingu og afþreyingu. Þetta er velkomið eftir erfið ár í heimsfaraldri,“ bætir Kristian við.
Framkvæmdastjóri Hurtigruten segist líka mjög glaður með bókunarstöðuna og Torunn Tronsvang sem skipuleggur dýrar Noregsreisur segir að þar á bæ fáist nú fimmtungi meira út úr hverjum viðskiptavini en áður. „Þetta er alveg frábært,“ segir Torunn.
Þeir norsku ferðafrömuðir sem Dagens Næringsliv ræðir við eru þó sammála um að veiking krónunnar skýri ekki ein og sér jákvæðar horfur í norskri ferðaþjónustu.
„Það er enginn sem ferðast til Noregs bara vegna óvenjulegrar gengisþróunar. Við finnum fyrir því að fleiri vilja koma í kyrrðina, víðáttuna, fallega náttúruna og öryggið. Og svo verður Noregur sérstaklega aðlaðandi þegar maður fær mun meira fyrir peninginn en áður. Fyrir okkur sem erum í útflutningsgeiranum er mjög ánægjulegt að upplifa þetta,“ segir Stein Ove Rolland, svæðisstjóri hjá Fjord Norge.