Adrian Keating hefur verið ráðinn yfirmaður sölu- og markaðsmála Play og bætist við lykilstjórendahóp félagsins. Um er að ræða nýja stöðu innan flugfélagins.
Adrian er með yfir 20 ára reynslu úr alþjóðlega fluggeiranum og mun vinna mjög náið með framkvæmdastjórn Play og aðstoða við uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins að því segir í tilkynningu.
Adrian hóf feril sinn hjá British Airways árið 1999 en hefur síðan þá starfað hjá easy-Jet, Etihad, Malaysia Airlines, Air Transat og síðast hjá Norse Atlantic sem forstöðumaður sölu, markaðs- og dreifingarmála en það flugfélag hóf áætlunarflug sl. sumar.
„Að ganga til liðs við Play á sama tíma og félagið fagnar því að fljúga með milljónasta farþegann markar upphafið að spennandi kafla á ferlinum mínum. Ég er mjög upp með mér að hafa fengið tækifæri til að leiða öflugan hóp sölu- og markaðssviðs Play og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum og verða partur af áframhaldandi vexti félagsins. Þá hlakka ég til þess að móta framtíðarsýn í sölu- og markaðsstarfi félagsins,“ segir Adrian Keating.
Sonja Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Play, segir að alþjóðleg reynsla Adrian muni nýtast vel við að kynna flugfélagið á erlendri grundu.
„Það er mikil eftirvænting fyrir komandi tímum hér hjá PLAY með þessum liðsauka,“ segir Sonja í tilkynningu.