Umhverfismatsskýrslan er unnin að frumkvæði Isavia og fjallar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda sem félagið áformar á Keflavíkurflugvelli á komandi árum. Markmiðið er að styrkja flugbrautarkerfið, stækka flugstöð og bæta aðstöðu vegna fyrirséðrar fjölgunar farþega.
Framkvæmdirnar verða unnar í samræmi við sjálfbærnistefnu Isavia, segir í tilkynningu frá félaginu, og verður uppbygging flugvallarins BREEAM-vottuð, sem er alþjóðlegt vottunarkerfi fyrir sjálfbærni framkvæmda.
Isavia hvetur hagaðila og allan almenning til að kynna sér efni umhverfismatsskýrslunnar en haldinn verður opinn kynningarfundur í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ mánudaginn 3. apríl.
Umhverfismatsskýrslan og upplýsingar um hvernig umsögnum um hana er skilað er að finna á vef Skipulagsstofnunar. Allar frekari upplýsingar um þróun Keflavíkurflugvallar er að finna á vefsíðunni www.kefplus.is.