Bretland hefur ekki verið með í Schengen samstarfinu og sagði sig úr Evrópusambandinu. Bretar fara því ekki langt án þess að vera með vegabréf og nú hótar fólkið sem útbýr passana að leggja niður störf frá 3. apríl og fram til 5. maí.
Stéttarfélag starfsmannanna gerir kröfur um hærri laun, betri lífeyri, breytt uppsagnarákvæði og meira atvinnuöryggi samkvæmt frétt Tgt. Ef af verkfalli verður þá stöðvast öll vegabréfaútgáfa í London, Glagsow, Liverpool og víðar og þar með gæti reynst erfitt fyrir marga að endurnýja passana fyrir sumarfríið.