Aðalfundur flugfélagsins Play fer fram Iðnó þann 7. mars og þar er lagt til að umboð fjögurra stjórnarmanna verði endurnýjað en að Spánverjinn Valentín Lago taki sæti Auðar Bjarkar Guðmundsdóttur. Varamaður verður sem fyrr Sigurður Kári Kristjánsson. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu.
Þar segir að Valentín Lago hafi meira en 30 ára reynslu af störfum í fluggeiranum og meðal annars sem stjórnandi hjá Air Europe, Iberia Express og Vueling en síðarnefndu félögin hafa lengi verið með Íslandsflug á dagskrá.