Samfélagsmiðlar

Framvegis verður 40% eldsneytis véla Ryanair sem fljúga frá Schiphol sjálfbært

Flugfélagið Ryanair og finnska olíuframleiðslufyrirtækið Neste hafa gert samkomulag um að allar vélar félagsins sem taka á loft frá Schiphol-flugvelli við Amsterdam noti 40% sjálfbært eldsneyti.

ryanair velar

Þessi samningur, sem tók gildi um síðustu mánaðamót, er liður í þeirri áætlun Ryanair að 12,5 prósent af öllu eldsneyti félagsins verði sjálfbært (SAF) fyrir árið 2030 og að félagið verði kolefnishlutlaust 2050. Með því að 40% eldsneytis véla Ryanair sem fljúga frá Schiphol verði sjálfbært er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim minnki um 32 prósent. 

Frá Schiphol-flugvelli – MYND: ÓJ

Mikill þrýstingur hefur verið af hálfu stjórnenda Schiphol um að dregið verði úr umhverfisáhrifum frá flugi um völlinn. Forráðamenn Ryanair og Neste segja að samkomulagið hraði orkuskiptum og sé mikilvægt skref í átt að markmiðinu um kolefnishlutleysi.

Neste er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á SAF fyrir flugvélar og ætlar að auka árlega framleiðslugetu sína um 1,5 milljónir tonna fyrir lok þessa árs með því að taka í notkun nýjar hreinsistöðvar í Singapúr og Rotterdam. Stöðugt fleiri flugvellir í Evrópu geta boðið upp á SAF- eldsneyti frá Neste, þeirra á meðal er Schiphol við Amsterdam. 

Höfuðstöðvar Neste í Espoo – MYND: Neste

Flugvélaeldsneytið sem sagt er sjálfbært, SAF, mengar mun minna en hefðbundið jarðefnaeldsneyti. Heildarlosun á öllum líftíma SAF – frá framleiðslu til brennslu – er sögð 80 prósentum minni en frá hefðbundnu jarðefnaeldsneyti. Neste vinnur SAF úr notaðri matarolíu og dýrafituleyfum. Síðan er venjulegu þotueldsneyti blandað saman við áður en olían er sett á flugvélar. 

Neste er með höfuðstöðvar í Espoo í Finnlandi en er með starfsemi víða um heim. Finnska ríkið er stærsti eigandi Neste, sem skráð er á markaði. Fyrirtækið sérhæfir sig í endurvinnslu úrgangsefna og umbreytingu þeirra í orkugjafa eins og SAF. 

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …