Það voru 852 farþegar sem flugu frá Akureyri til Tenerife í janúar og febrúar sl. en þá hélt Niceair úti áætlunarferðum til spænsku eyjunnar frá höfuðstað Norðurlands. Hlé var gert á starfsemi Niceair í síðustu viku og sölu farmiða hætt en félagið hafði ráðgert að skipta um gír nú í lok vetrar og taka upp reglulegar ferðir til Alicante á Spáni í stað þess að fljúga til Tenerife.
Íbúar á Akureyri og nágrenni eiga þó ennþá færi á að komast beint úr heimabyggð til Tenerife í sumar og nú með Heimsferðum. Ferðaskrifstofan hefur nefnilega sett í sölu tvær Tenerifeferðir frá Akureyri, eina í júní og aðra í júlí.
Þessa tvo mánuði í fyrra flugu 907 farþegar frá Akureyri til flugvallarins á suðurodda Tenerife.