Samfélagsmiðlar

Hvað á ráðherra við?

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra.

„Íslensk­ur flugiðnaður er sjálf­bær meðan verið er að styrkja ýms­ar flug­leiðir um alla Evr­ópu af því að þær standa ekki und­ir sér.“ Þessi orð hafði Mbl eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarmálaráðherra, í gær. Óhætt er að segja að þessi fullyrðing um sjálfbæran rekstur íslenskra flugfélaga orki tvímælis, svo vægt sé til orða tekið.

Afkoma Icelandair hefur til að mynda verið neikvæð allt frá árinu 2017 en árin fyrir heimsfaraldur, 2018 og 2019, voru almennt góð í flugrekstri í löndunum í kringum okkur. Meira að segja SAS, sem hefur lengi átt í erfiðleikum, skilaði methagnaði árið 2018.

Icelandair tapaði aftur á móti um 7 milljörðum króna þetta ár og þáverandi forstjóri félagsins sagði starfi sínu lausu.

Tapið 2019 var álíka mikið – sem skrifast helst á kyrrsetningu Boeing Max þotanna, en þetta ár fór samt helsti keppinauturinn, Wow Air, í þrot. Það félag tapaði háum upphæðum árin tvö á undan og var eingöngu réttum megin við núllið árin 2015 og 2016.

Afkoma Play hefur hingað til líka verið miklu lakari en gert var ráð fyrir þegar félagið safnaði um 10 milljörðum króna í hlutafé á fyrri hluta árs 2021. Tapið í fyrra nam 7,5 milljörðum króna eða um 9.500 krónum á hvern farþega.

Innanlandsflug hér á landi hefur líka verið erfitt og í ársbyrjun 2019 gripu stjórnendur Isavia til þess að kyrrsetja flugvél Ernis vegna skuldar flugfélagsins og stuttu síðar viðurkenndi forstjóri Icelandair að afkoman af innanlandsflugi félagsins væri „mjög slæm“.

Svo kom heimsfaraldurinn og þá fór flugrekstur hér á landi sem víðar í skrúfuna og hefur hið opinbera haldið áfram að styðja við rekstur innanlandsflugs, bæði með því að borga með ákveðnum flugleiðum en einnig með niðurgreiðslu á farmiðum íbúa á landsbyggðinni. Það er því ekki heldur rétt hjá Lilju Dögg, viðskiptaráðherra, að það séu bara önnur ríki sem niðurgreiði innanlandsflug.

Af ofantöldu má sjá að það er erfitt að sjá hvað ráðherra á við þegar hún segir íslenskan flugrekstur vera sjálfbæran. Það er sem betur fer útlit fyrir að hagur íslenskra flugfélaga sé að batna hratt enda er eftirspurn eftir ferðalögum mikil og olíuverðið í dag er miklu lægra en það var í fyrra.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …