Icelandair tilkynnti eftir hádegi í dag að félagið ætlaði á ný að hefja áætlunarflug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar. Nokkrum klukkutímum áður hafði breska flugfélagið Easyjet boðað komu sína til Akureyrar næsta haust með áætlunarferðum frá Gatwick flugvelli í London.
Spurður hvort sú ákvörðun sé svar við flugi EasyJet til Akureyrar þá segir Guðni Sigurðsson, talsmaður Icelandair, svo ekki vera.
„Við höfum lengi haft það á teikniborðinu að endurvekja tengingar á milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar. Við stefndum að því að hefja flugið í vor en tekin var ákvörðun um að fresta því og byrja á tímabilinu 15. október til 30. nóvember 2023. Undirbúningur haustflugsins milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar hefur staðið yfir í nokkrar vikur og hófst áður en við heyrðum af flugi EasyJet til Akureyrar,“ útskýrir Guðni.