Golfdeild ferðaskrifstofunnar Aventura hefur hingað til verið starfrækt af GolfSaga ehf. og haft á boðstólum sérferðir fyrir kylfinga til fjölda áfangastaða á Spáni.
Nú hafa eigendur og starfsmenn GolfSögu fært sig um set yfir til ferðaskrifstofunnar Verdi sem varð til í byrjun árs þegar Ferðaskrifstofa Akureyrar og Tónsport, sem áður rak íþróttadeild Vita, sameinuðust. Þetta kemur fram í tilkynningu til viðskiptavina Golfsögu.
Eftirspurn eftir golfferðum út í heim er mikil eins og endurspeglast í úrvali af þess háttar reisum á heimasíðum íslenskra ferðaskrifstofa. Aukið framboð á flugi héðan til Suður-Evrópu yfir vetrarmánuðina hefur líka opnað fleiri valkosti fyrir kylfinga sem vilja spila yfir háveturinn.