Bandaríska verðbréfafyrirtækið Briarwood Capital Partners komst fyrst á lista yfir 20 stærstu hluthafa Icelandair þann 26. janúar sl. Tveimur vikum síðar var Briarwood orðið næst stærsti hluthafinn með 3,67 prósent hlut. Markaðsvirði hlutabréfanna var þá 3,2 milljarðar króna.