Samfélagsmiðlar

Létu vera að svara Niceair en bregðast strax við komu Easyjet

Grunnur við flugstöðina á Akureyri

Fyrirhugaður komusalur millilandaflugs á Akureyrarflugvelli.

Stjórnendur Icelandair höfðu uppi áform um að taka upp þráðinn nú í sumar í áætlunarflugi milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar en ákváðu undir lok síðasta árs að fresta þessu til vorsins 2024 jafnvel þó Niceair væri þá að hasla sér völl í millilandaflugi frá höfuðstað Norðurlands.

„Við viljum ná betri tökum á ýmsum verkefnum í innanlandsfluginu áður en við víkkum starfsemina út. Það er býsna flókið að setja upp nauðsynlega starfsemi á Akureyri. Við viljum undirbúa þetta vel. Aðfangakeðjur eru flóknari en fyrir heimsfaraldur og við þurfum að taka mið af því,“ sagði Tómas Ingason, framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu hjá Icelandair, um ástæður þess að Keflavíkurflugið frá Akureyri hefði verið sett á ís.

Fyrr í dag bárust svo þau tíðindi að breska flugfélagið Easyjet ætlaði að hefja flug til Akureyrar frá London nú í lok október og fljúga tvær ferðir í viku.

Nokkrum klukkutímum síðar sendi Icelandair frá sér tilkynningu þar sem segir að nú ætli félagið að hefja á ný flug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar strax í október og halda ferðunum úti fram í enda nóvember. Ekki er um að ræða hefðbundið innanlandsflug því ferðirnar standa þeim aðeins til boða sem eru á leið til útlanda eða að koma til landsins.

„Það er ánægjulegt að segja frá því að við höfum hafið sölu á tengiflugi milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar. Tengitímar eru mjög þægilegir og með þessari þjónustu bjóðum við Norðlendingum að stytta ferðatímann umtalsvert til fjölda áfangastaða okkar í Evrópu. Tengingunni er einnig ætlað að stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið og við munum nýta alþjóðlegt sölunet okkar til þess að byggja upp eftirspurn eftir flugi til Akureyrar á mörkuðum okkar erlendis,“ segir Bogi Nils Bogason, í tilkynningu.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …