Samfélagsmiðlar

Opinber stuðningur í heimsfaraldrinum dæmdur óheimill

Opinber stuðningur við flugfélög var með ýmsum hætti í heimsfaraldrinum.

Botninn datt úr rekstri flugfélaga þegar Covid-faraldurinn hófst í ársbyrjun 2019. Ráðamenn víða um heim gripu þá til þess að styðja sérstaklega við flugrekstur í sínum löndum, bæði með lánveitingum og eins kaupum á hlutabréfum. Hið þýska Lufthansa fékk þannig stuðning og kærðu stjórnendur Ryanair, stærsta lágfargjaldaflugfélags Evrópu, þá ráðstöfun.

Í dag kom svo loks dómur undirréttar Evrópudómstólsins í málinu og samkvæmt honum var þessi opinberi stuðningur ekki lögmætur. Skiptir þá einu að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafði áður gefið grænt ljós fyrir stuðningi við flugfélög í ljósi þeirrar fordómalausu stöðu sem þau voru í.

Stuttu eftir að dómurinn í máli Lufthansa féll í morgun þá kom niðurstaða í sambærilegu máli sem beindist að opinberum stuðningi við SAS, stærsta flugfélaga Norðurlanda. Ríkisstuðningurinn sem það félag fékk var sömuleiðis dæmdur ólögmætur.

Hverjar afleiðingarnar verða fyrir SAS og Lufthansa liggur ekki fyrir á þessari stundu en hið síðarnefnda hefur greitt tilbaka það fé sem félagið fékk á sínum tíma. Þýska ríkið hefur einnig selt hlut sinn í flugfélaginu með töluverðum ágóða.

Staða SAS er flóknari því það félag hefur undanfarna 10 mánuði notið gjaldþrotaverndar fyrir bandarískum dómstólum og hefur nýtt þann tíma til að semja við kröfuhafa. Þar á meðal danska, sænska og norska ríkið sem hafa fallist á að breyta kröfum í hlutafé.

Forsvarsfólk SAS hefur ekki gefið út nein viðbrögð um áhrif dómsins á þau áform.

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …