Samfélagsmiðlar

Reiknar með að biðin eftir nýju Airbus þotunum lengist umtalsvert

Eftir heimsfaraldur gengur framleiðsla á mörgu hægar en áður, það á líka við um farþegaþotur.

Stuttu eftir að Airbus flugvélaframleiðandinn svipti hulunni af hinum óvenju langdrægu A321 XLR þotum árið 2019 þá lagði Bill Franke, sá sem íhugaði að kaupa stóran hlut í Wow Air, inn pöntun á fimmtíu eintökum af þotunni. Fjárfestingafélag Franke, Indigo Partners, bætti svo pöntun á 255 flugvélum frá Airbus til viðbótar í hittifyrra.

Ætlunin er að skipta þotunum á milli þeirra flugfélaga sem Indigo Partners eiga hlut í, þar á meðal Wizz Air sem er stórtækt í Íslandsflugi.

Þegar kaupsamningarnir voru undirritaðir var búist við að Airbus myndi afhenda fyrstu vélarnar í síðasta lagi árið 2025. Í dag hefur Franke hins vegar ekki trú á því að þessi áform standist. Skortur á aðföngum hafi hægt á framleiðslu síðustu misseri og muni gera það áfram að hans mati. Ástandið gæti jafnvel varað til ársins 2028 og þar með muni Indigo Partners og fjöldi flugfélaga þurfa að bíða lengur en áætlað var eftir nýjum flugvélum.

Þetta kom fram í máli Franke á flugráðstefnu vestanhafs nýverið samkvæmt frétt The Airline Observer.

Þar er bent á að þessi spá sé í takt við það sem Steven Udvar-Hazy, stjórnarformaður Air Lease, stærstu flugvélaleigu heims, hélt fram í byrjun vikunnar. Sá telur að tafir á afhendingu nýrra flugvéla, bæði frá Airbus og Boeing, gætu varað í nokkur ár til viðbótar. En það var einmitt Air Lease sem átti þotuna sem Isavia kyrrsetti þegar Wow Air varð gjaldþrota.

Icelandair er eitt þeirra flugfélaga sem nú treystir á að framleiðsla á Airbus þotum verði hröð næstu árin. Fyrir nýliðna páska skrifaði félagið undir viljayfirlýsingu um kaup á nýjum Airbus A321XLR þotum sem afhenda á árið 2029. Strax á þarnæsta ári ætlar félagið hins vegar taka í gagnið nýjar leiguvélar að tegundinni A321LR.

Biðin eftir þessum þotum gæti þó orðið lengri ef stöðumat Franke og Udvar-Hazy reynist rétt. Þar með gæti félagið þurft að nota hinar gömlu Boeing 757 þotur ennþá lengur en gert var ráð fyrir.

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …