Flugfélagið Play fór sitt fyrsta flug til Aþenu, höfuðborgar Grikklands, í morgun. Þar með er í fyrsta skipti hafið beint áætlunarflug á milli Íslands og Aþenu. Til stóð að áætlunin myndi ná frá júní og út október en vegna mikillar eftirspurnar eftir ferðum með Play til Aþenu var ákveðið að framlengja hana til janúar 2024.
Í tilkynningu segir að áhuginn á þessari nýbreytni sé ekki einungis frá Íslendingum heldur einnig Grikkjum sem vilja fljúga til Íslands og eiga möguleika á tengiflugi til áfangastaða Play í Norður-Ameríku.
„Það er stórkostlegur áfangi að geta hafið beint áætlunarflug til Aþenu og það gleður okkur mikið að finna fyrir þessum mikla áhuga á ferðum okkar til og frá þessarar sögufrægu borgar. Við sáum fyrir okkur stór tækifæri í tengiflugi á milli Aþenu og Norður-Ameríku og sá grunur reyndist réttur. Og það er ekki síður gaman að geta boðið sólþyrstum Íslendingum upp á ferðum til þessarar stórkostlegu borgar yfir vetrartímann,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, í tilkynningu.
Í fyrsta sinn áætlunarflug milli Íslands og Grikklands
