Það voru nærri 46 þúsund farþegar sem fóru um Reykjavíkurflugvöll í síðasta mánuði sem er aukning um 29 prósent frá því í júlí í fyrra samkvæmt flugtölum Isavia. Á sama tíma fækkaði farþegum í innanlandsflugi Icelandair um 4 prósent og einnig dróst farþegahópurinn saman á Akureyri og Egilsstöðum.
Aukningin á Reykjavíkurflugvelli skrifast nefnilega ekki á hefðbundið innanlandsflug heldur útsýnisflug að eldstöðvunum á Reykjanesi og farþega einkaflugvéla. Því samkvæmt upplýsingum frá Isavia þá voru farþegar í þyrlu og leiguflugi samtals 17.446 í júlí en á sama tíma í fyrra voru þeir 2.925.
Þegar þessir farþegar eru teknir út fyrir sviga þá sést að farþegum í innanlandsflugi á Reykjavíkurflugvelli fækkaði um 13 prósent í júlí frá sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir að erlendu ferðamennirnir hafi verið um 40 þúsund fleiri að þessu sinni en kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt að lágt hlutfall túrista nýtir sér innanlandsflug.