Fimm félög innan samstæðu Bláa lónsins

Rekstur Bláa lónsins hefur gengið vel það sem af er ári samkvæmt því sem segir í tilkynningu. Um 800 manns vinna hjá fyrirtækinu. MYND: BLÁA LÓNIÐ

Hluthafar Bláa lónsins hafa samþykkt að stofna sérstakt eignarhaldsfélag utan um dótturfélög fyrirtækisins. Stefnt er að skráningu Bláa lónsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi næsta vor en endanleg tímasetning ræðst af markaðsaðstæðum og framvindu undirbúnings.

Nýja eignarhaldsfélagið mun bera nafnið Bláa Lónið hf. en starfsemi félagsins í Svartsengi fær heitið Bláa Lónið Svartsengi ehf. Í tilkynningu segir að hluthafar nýja eignarhaldsfélagsins séu einvörðungu þeir sem áður voru hluthafar í því félagi sem nú er Bláa Lónið Svartsengi ehf.

„Þessar breytingar eru liður í áætlun félagsins um að einfalda skipulag, skerpa sýn og auka hagkvæmni í rekstri fyrrgreindra félaga, en starfsemi Bláa lónsins hf. hefur orðið fjölþættari síðustu misseri. Í því samhengi má nefna nýafstaðna uppbyggingu hálendismiðstöðvar í Kerlingarfjöllum, fyrirhugaðar framkvæmdir í Þjórsárdal og aukna áherslu á markaðssetningu húðvara félagsins erlendis,“ segir í tilkynningu.

Dótturfélög Bláa lónsins hf. eru eftirfarandi:

  • Bláa Lónið Svartsengi ehf. – Félagið annast allan rekstur í Svartsengi. Undir hann fellur baðstaðurinn Bláa Lónið, hótelin Silica og The Retreat, heilsulindin Retreat Spa, veitingastaðirnir Lava, Retreat Spa Restaurant og Michelin staðurinn Moss auk Blue Café. Þá fellur einnig undir reksturinn Lækningalind félagsins og Rannsókna- og þróunarsetur.
  • Íslenskar Heilsulindir ehf. – Eignarhaldsfélag um hluti í öðrum baðstöðum og ýmis þróunarverkefni, þar með talið uppbyggingu félagsins í Kerlingarfjöllum og Þjórsárdal.
  • Blue Lagoon Skincare ehf. – Félagið annast þróun, framleiðslu og sölu húðvara innanlands og erlendis.
  • Blue Lagoon Journeys ehf. – Þróunarfélag um aðra afþreyingartengda þjónustu innan samstæðunnar.
  • Eldvörp ehf. – Félagið rekur allar fasteignir félagsins.