Segir upp hjá Icelandair

Gunnar Már Sigurfinnsson hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri Icelandair Cargo og mun þar með stíga til hliðar úr framkvæmdastjórn Icelandair Group. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en félagið tilkynnti í gærkvöld að afkoma félagsins í ár yrði verri en áður hafði verið reiknað með. Þungur róður í fraktflugi og hækkun olíuverðs eru sagðar helstu ástæður þessa.

Gunnar Már mun halda áfram að starfa með Icelandair næstu mánuði og styðja eftirmann sinn eftir því sem þörf er á til að tryggja óslitna starfsemi á þessu sviði flugfélagsins.

Einar Már Guðmundsson, forstöðumaður hjá tæknisviði Icelandair, mun tímabundið taka við starfi framkvæmdastjóra Icelandair Cargo og mun sitja í framkvæmdastjórn Icelandair á meðan hann gegnir stöðunni. Formlegt ráðningarferli mun nú fara af stað í því skyni að ráða til starfa nýjan framkvæmdastjóra félagsins.  

“Ég er gríðarlega stoltur og þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að vinna fyrir Icelandair Group að fjölmörgum verkefnum alla mína starfsævi. Ferillinn sem hófst í Eyjum árið 1986 hefur spannað allt sviðið sem þetta frábæra félag býður upp á. Það hefur verið skemmtileg vegferð frá hlaðinu alla leið í framkvæmdastjórn. Ég hef notið þess að vinna með frábæru fólki bæði hér á landi og á starfstöðvum félagsins erlendis þar sem við höfum ávallt unnið saman að einu markmiði í blíðu og stríðu. Icelandair hefur mikil tækifæri til frekari vaxtar og býr yfir frábærum mannauði sem mun tryggja góðan árangur til lengri tíma. Ég óska öllum í Icelandair fjölskyldunni velfarnaðar í þeirra störfum og mun að sjálfsögðu verða áfram til staðar til að liðsinna við þau mikilvægu verkefni sem eru framundan innan félagsins,” segir Gunnar Már í tilkynningu. 

Þar er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að Gunnar Már hafi verið mikilvægur liðsmaður innan Icelandair síðustu áratugi þar sem hann hefur gegnt ýmsum mikilvægum stöðum innan félagsins.

„Hann hefur verið framkvæmdastjóri hjá Icelandair síðan 2005, meðal annars sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs í samtals yfir 5 ár. Hann hefur svo farsællega leitt starfsemi Icelandair Cargo síðastliðin 15 ár þar sem hann gegndi mikilvægu hlutverki þegar Covid-19 faraldurinn gekk yfir. Þegar Icelandair gekk í gegnum þetta krefjandi tímabil átti hann stóran þátt í að grípa þau tækifæri sem gáfust á fraktmarkaðnum til að tryggja  mikilvægar tekjur þegar Icelandair fór í gegnum fordæmalausa erfiðleika. Fyrir hönd Icelandair teymisins vil ég þakka Gunnari Má fyrir ómetanlegt starf hjá félaginu í gegnum árin og hlakka til að vinna áfram með honum í þeim mikilvægu verkefnum sem eru framundan hjá félaginu,“ segir Bogi Nils.