Sigurður Magnús Sigurðsson sem verið hefur framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs WOW air mun láta af störfum hjá flugfélaginu. Hann var ráðinn til WOW í lok sumars 2015 og hafði þá gegnt stöðu flugrekstrarstjóra hjá flugfélaginu Atlanta um árabil. Sigurður mun vera á leið á ný Atlanta samkvæmt heimildum Túrista. Framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs WOW er jafnframt ábyrgur fyrir flugrekstrarleyfi flugfélagsins …