Tjón Icelandair vegna kyrrsetningar Boeing MAX þotanna er nú metið á 135 milljónir dollara sem jafngildir 16,8 milljörðum króna. Náðst hefur bráðabirgðasamkomulag við bandaríska flugvélaframleiðandann um bætur fyrir hluta þessa tjóns samkvæmt því sem fram kom í tilkynningu frá Icelandair í gær. Aðspurð segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, að samkomulagið sé óháð yfirstandandi viðræðum flugfélagsins um kaup …